Gérard Bertrand hefur á undanförnum árum unnið að því að færa vínrækt sína í Languedoc í Frakklandi yfir í lífræna og lífeflda ræktun. Hér er nú komið fyrsta Cabernet Sauvignon vínið úr Réserve-línunni sem er með lífræna vottun og þar að auki skrúfaðan tappa.
Heitur, allt að því sultaður ávöxtur, plómur, sólber, brómber, lyng. Mjúkt og þægilegt, ungur ávöxtur, lakkrís.
70%
2.299 krónur. Mjög góð kaup.
-
7