Þetta kassavín – eða ætti maður kannski að kalla það töskuvín – kassinn er mótaður eins og elegant handtaska, er suður-franskt og þrúgurnar tvær, Chardonnay og Viognier. Vínið kemur frá sænska vínhúsinu Oenoforos sem lætur framleiða fyrir sig vín víða um Evrópu og hefur einnig hafið framleiðslu, eða kannski öllu heldur eftirvinnslu sjálft á vínum úr innfluttum vínsafa í framúrstefnulegu víngerðarhúsi í Suður-Svíþjóð er ber nafnið Nordic Sea Winery. Vínin frá Oenoforos hafa verið afskaplega vinsæl á Norðurlöndunum, ekki síst Svíþjóð og nokkur þeirra hafa ratað hingað upp á síðkastið.
Þetta er létt hvítvín, svolítið græn og skörp angan, sítrusávöxtur, blómasápa ekki dæmigerður Chardonnay eins og við eigum að venjast, það er eiginlega frekar ungur Viognier sem frekar treður sér fram. Það er þurrt í munni, sítrusbörkur, svolítið skarpt, míneralískt, ekki langt.
3.920 krónur fyrir 1,5 lítra tösku eða sem samsvarar 1.960 krónum á 75 cl. flösku.
-
6