Brennivínið í afmælisbúningi

IMG_0985Í áraraðir hefur Brennivín verið talinn drykkur íslensku þjóðarinnar. Mörg þorrablótin hafa fallið í gleymsku eftir ótæpilega brennivínsdrykkju og menn hafa gengið svo langt að kalla áfengisdauða brennivínsdauða. Það má því segja að landinn hafi talið Brennivín vera til eins brúks best, það er að skella því í sig hratt og örugglega og biðja til guðs að vakna morguninn eftir.

Eftir 80 ára sögu drykksins er því kannski ekki vanþörf á breytingum. Breytingum sem reynast í senn ferskar og óvæntar. Í ár kemur á markað sérstök afmælisútgáfa Brennivíns. Brennivínið er sérstakt að því leiti að það hefur legið í heilt ár í þremur mismunandi tunnum, bandarískri eik, Islay viskí og bandarískum bourbon tunnum.

Áhrif eikarinnar  leyna sér ekki, gríðarleg mýkt er í nefi, áberandi vanilla, sæta, keimur af kókos hnetum með hinum hefðbundna kúmenkeim, sem verið hefur auðkenni íslenska brennivínsins,  undirliggjandi. Á tungu er það mjúkt og áhrif eikarinnar eru mikil. Í heild er þetta mjúkt, gott og furðulega auðdrekkanlegt. Það er því ekki úr vegi að afmælisútgáfan sé til þess að njóta í stað þess að þamba.

Deila.