Montes Reserva Merlot 2014

IMG_1309Reserva-línan frá Montes í Chile er ein af línunum sem að setur svolítið standardinn í þessu flokki í Chile og löngum hefur það verið þannig að Merlot-vínið í línunni er eitt það allra sterkasta. Þykk angan, þroskaður ávöxtur, allt að því sultaður sólberja- og plómuávöxtur, sedrusviður, tóbakslauf og kaffi, það hefur flotta uppbyggingu, mýkt en jafnframt tanníska festu og ferska sýru. Verulega gott.

80%

1.999 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.