Vínsýning þar sem birgjar víninnflytjandans Haugen koma og kynna vörur sínar er að verða fastur liður á tveggja ára fresti. Þessi sýning hefur farið vaxandi með hverju skiptinu sem að hún er haldin og nú var að auki boðið um á nokkrar masterclass-smakkanir þar sem að farið er í gegnum tiltekin vín undir leiðsögn sérfróðs aðila.
Við sóttum t.d. masterclass þar sem farið var yfir vín frá vínhúsi Michel Lynch en það er í eigu Cazes-fjölskyldunnar í Bordeaux. Systkinin Jean-Michel og Sylvie Cazes eru áberandi í Bordeaux, ekki bara út af fjölskylduhúsinu Chateau Lynch-Bages, sem er í hópi bestu vínhúsa Frakklands, heldur einnig vegna margvíslegra trúnaðarhlutverka sem að þau hafa gegnt í gegnum árin.
Isabelle Jaud sem að stjórnaði masterclass-smökkuninni fór yfir nokkur Bordeaux-vín, allt frá hinum einföldu Michel Lynch upp í chateau-vínið Cordeillan-Bages, sem er nágranni Lynch Bages. Einnig voru smökkuð vín frá Chateauneuf-du-Pape og Portúgal – en eitt athyglisverðasta vínið í smökkuninni kom einmitt frá Douro-dalnum. Eiginkona Jean-Michel Cazes er frá Portúgal og Cazes-fjölskyldan því með sterk tengsl þangað. Þetta vín er afsprengi samvinnu þeirra við Roquette-fjölskylduna sem á hið magnaða vínhús Quinta do Crasto. Og hvað gæti slíkt vín heitið annað en Roquette & Cazes.






