Finca Las Moras Pinot Grigio 2014

Vinsældir Pinot Grigio þrúgunnar eins og hún er nefnd á Ítalíu (og er sú sama og heitir Pinot Gris í Frakklandi) hafa magnast upp á síðustu árum. Ekki síst eru það bandarískir vínneytendur sem eru afskaplega sólgnir í vín úr þessari hvítu þrúgu og því ekki að furða að vínhús víða um heim skuli taka hana upp á sína arma. Þessi Pinot Grigio kemur til dæmis frá Argentínu.

Vínið er mjög ljóst á lit, fölgult, létt, mild angan, þarna er pera og smá blómaangan, örlítið kryddað. Létt í munni með ferskri sýru.

60%

1.799 krónur. Berið fram vel kælt, t.d. sem fordrykk.

  • 6
Deila.