Chateau Coucheroy 2012

img_2663Þeir sem komnir eru á miðjan aldur muna eflaust margir eftir því þegar að Chateau Coucheroy birtist fyrst í vínbúðunum, allt í einu var þarna fáanlegur hörkufínn Bordeaux á vel viðráðanlegu verði. Það er því ánægjulegt að nú þegar að Coucheroy á endurkomu inn á markaðinn þá hefur að minnsta kosti eitt ekki breyst – þetta er hörkufínn Bordeaux á viðráðanlegu verði.

Coucheroy er annað vín frá einu af betri vínhúsum Pessac-Léognan svæðisins réttur suður af borginni Bordeaux sem heitir Chateau de Rochemorin. Flottur rauður ávöxtur, vindlakassi, sedrusviður, mokkakaffi, kryddað, nokkur negull. Vel strúktúrerað, fín tannísk uppbygging. Hörkuvín.

90%

3.180 krónur. Ansi mikill Bordeaux fyrir þann pening.

  • 9
Deila.