Pares Balta Blanc de Pacs 2015

img_3272Pacs er lítið þorp í Katalóníu nánar tiltekið í Pénedes, suður af Barcelona. Þetta er samt varla þorp, meira húsaþyrping. Þarna í grennd er að finna flest þekktustu vínhús Pénedes og í Pacs býr Cusine-fjölskyldan sem rekur hið lífræna vínhús Pares Balta og framleiðir nokkur af bestu vínum Katalóníu.

Blanc de Pacs er lífrænt ræktað vín líkt og önnur frá Pares Balta, þetta er hvítvín úr þrúgunum Parellada, Macabeo (sem líka er þekkt undir nafninu Viura) og Xarello en það eru jafnframt þær þrúgur sem alla jafna eru notaðar í Cava-freyðivínin, sem einmitt koma frá þessu svæði.

Ljóst og fölt á lit, arómatísk angan, blóm, þurrkaðir ávextir, áberandi þroskuð gul epli og perur, létt, milt og þægilegt.

70%

1.999 krónur. Góð kaup.

  • 7
Deila.