Chapoutier er eitt af stóru nöfnunum í Rónardalnum í Frakklandi, einn þeirra framleiðenda sem ár eftir ár sendir frá sér einhver bestu vín héraðsins. Það er ekki oft sem hægt er að segja að kassavín séu áhugaverð en þegar framleiðandi eins og þessi sendi frá sér þriggja lítra box er ástæða til að gefa því gaum. Þrúgurnar eru fyrst og fremst Grenache og Syrah ræktaðar í syðri svæðum Rhone, s.s. Gard, Ardeche og Vaucluse. Það hefur tæran rauðan lit, bjarta og flotta angan þar sem rauð ber eru ríkjandi, skógarber, rifsber, smá lyng, fersk sýra, þurrt og örlítið piprað í munni.
80%
6.990 krónur eða rétt tæpar 1.750 krónur miðað við 75 cl flösku. Frábær kaup.
-
8