Fondo Antico er fjölskylduvínhús rétt við Trapani, norður af Marsala á Sikiley. Þrúgan Syrah er vissulega ekki sikileyskt en hún hefur sýnt að hún undir sér víða um heim og það á meðal annars við um hið sólríka loftslag Sikileyjar. Vínið er dökkt á lit, þroskuð dökk kirsuber í nefi, nokkuð kryddað, þarna er vottur af lakkrís, vínið sprækt með góðri sýru og lengd. Fínt matarvín.
80%
2.375 krónur. Frábær kaup.
-
8