Þetta er vel gert og þægilegt Chardonnay-vín úr Jacob’s Creek-línunni sem óhætt er að segja að sé einn þekktasti sendiherra ástralskra vína. Þurrkaður sítrus í nefi, sítrónubörkur, ferskjur, melónur og töluverð vanilla, bæði vanillustöng og vanillusykur, milt og þægilegt í munni, ferskt með nokkurri eik í bland við ávötinn.
70%
1.999 krónur. Mjög góð kaup.
-
7