Solms Delta Chenin Blanc 2016

Solms Delta er athyglisvert suður-afrískt vínhús í Franschoek á Höfðasvæðinu. Delta er eitt af elstu vínhúsum landsins með rúmlega þriggja alda sögu sem að vísindamaðurinn og prófessorinn Mark Solms keypti upp úr aldamótum. Hann hefur í samvinnu við Bretann RIchard Astor unnið að þvi að endurreisa vínhúsið og bæta í leiðinni fyrir sögulegar syndir í suður-afrískri víngerð á aðskilnaðartímanum. Þriðjungur hlutabréfa í vínhúsinu var falin sérstökum sjóði sem er ætlað að bæta líf afkomenda þeirra sem hafa unnið á vínekrum Delta jafnvel í þrældómi.

En snúum okkur að víninu sjálfu. Chenin Blanc er auðvitað frönsk þrúga frá Loire en hún á sér langa sögu í Suður-Afríku þar sem hún dafnar einstaklega vel. Vínið er fölgult á lit. Ferskt og ávaxtaríkt, ferskjur, ananas, þurrkaður banani og perur, ágætlega ferskt og þægilegt. Vel gert.

70%

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.