Það var árið 1996 sem að vínhúsið Cono Sur í Chile, sem hvað þekktast er fyrir að leggja mikla áherslu á náttúrulega og lífræna ræktun, ákvað að hella sér í slaginn í efri deildunum. Þrúgan Pinot Noir varð fyrir valinu og voru 20 tunnur lagðar til hliðar af besta víní hússins. Nafnið 20 Barrels festist við vínið og með árunum hafa fleiri þrúgur bætst í hópinn.
Þetta er djúpur og heitur pinot, þroskaður ávöxtur berjasulta og plómur, mild eik sem gefur smá reyk og leður, mjúkt og þykkt. Reynið t.d. með önd.
90%
3.390 krónur. Frábær kaup.
-
9