El Coto Crianza 2013

El Coto er með stærri vínhúsum Rioja þó það sé ekki með þeim elstu og vínin þeirra eru þau Rioja-vín sem Spánverjar sjálfir kaupa hvað mest af.

Crianza er með yngstu vínflokkunum í Rioja en engu að síður er þetta vín sem komið er á fjórða ár og búið að hlaupa af sér mestu hornin. Dökkrauður ávöxtur, kirsuber og þroskaður rifs, mild eik sem bætir við smá vanillu og kryddum, góð fersk sýra sem gerir vínið lifandi og matvænt. Ekta tapasvín, til dæmis með skinku og ostum en einnig grilluðu kjöti.

70%

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.