Þrúgurnar sem rækta má í Rioja-héraðinu á Spáni eru sjö talsins: Tempranillo, Graciano, Garnacha, Mazuelo, Viura, Malvasia og Garnacha Blanca. Þrjár fjórar fyrstu eru rauðar, hinar þrjár hvítar. Það er ekki oft – eiginlega nánast aldrei – sem að maður fær þær allar í einu og sama víninu. Það er hins vegar gömul hefð fyrir því í Evrópu að blanda saman hvítum og rauðum vínum, þekktustu dæmin eru líklega hin mögnuðu Cote Rotie í Frakklandi og Chianti vínin í Toskana á Ítalíu. Í víninu Siete Vinas sækir vínhúsið Baron de Ley innblástur í þessa gömlu hefð.
Ekki spillir að 2010 árgangurinn er einn sá besti í Rioja nokkru sinni og ánægjulegt að við séum enn að fá vín af þessum magnaða árgangi.
Vínið hefur dökkrauðan lit, farið að sýna smá þroska. Ávöxtur og eik hafa runnið fullkomlega saman í nefi og ferski ávöxturinn er að breytast í flóknari angan þar sem jörð, leður og fjólur eru að taka fram úr sólberja- og kirsuberjaangan. Flottur, svolítið Bordeaux-legur strúktur með kröftugum og þéttum tannínum sem eru farin að mýkjast. Hörkuvín.
4.799 krónur. Frábær kaup, magnað vín. Með grillaðri, vel hanginni Rib-eye steik og sjávarsalti. Þafr ekki meira með.
-
10