Clos de los Siete er vín með unga en engu að síður áhugaverða sögu. Michel Rolland, sem er einhver áhrifamesti víngerðarmaður Bordeaux – og raunar heimsins hefur komið að vínum um allan heim auk þess að eiga nokkur vínhús í Bordeaux, aðallega í Saint-Emilion. Hann heillaðist þvílíkt af aðstæðum í Uco í suðurhluta Mendoza í Argentínu að hann fékk nokkrar af þekktustu vínfjölskyldum í Bordeaux til að taka þátt með sér í að byggja upp 850 hektara vínrækt þar syðra. Fjölskyldurnar fjórar eru hver með sinn skika innan landareignarinnar en leggja jafnframt allar í púkkið í sameiginlegt vín, Clos de los Siete, sem Rolland sér um. Sveitungar þeirra í Bordeaux töldu þau vera orðin hálf klikkuð að fara út í þetta, það er þangað til að þeir smökkuðu vínin.
Clos de los Siete er dökkt og massívt vín, þroskaður plómuávöxtur sólber og mjög dökkt súkkulaði, ungt, þétt og fókuserað, Kröftugt, fíngerð og öflug tannín, langt og mjúkt.
3.190 krónur. Frábær kaup, eiginlega fáránlega góð kaup. Leyfið víninu að opna sig og hafið það við kjörhitastigið 18-20 gráður.
-
10