Chapoutier er eitt af mögnuðustu vínhúsunum í Rhone og framleiðir meðal annars nokkur af hæst skrifuðu Hermitage-vínunum. Michel Chapoutier er hins vegar ekki mikið fyrir að fara ótroðnra slóðir og kemur við í víngerð víða um heim. Hér er hann ekkert afskaplega langt frá heimaslóðunum, Leg vignes de Bila-Haut er vín frá Cotes-du-Roussillon syðst í Frakklandi.
Þó að þetta sé Languedoc-vín er uppbyggingin svolítið Rhone-leg, ekki síst þegar kemur að flottum tannískum strúktúr vínsins. Það er ungt og dökkt á lit með fjólubláum tónum, svört, heit og þroskuð ber í nefi, þarna eru líka svartar ólífur, vínið nokkuð kryddað og sólbakað en þó virkilega ferskt með flottri sýru og tannínum sem gera þetta að ansi hreint spræku og glæsilegu víni á frábæru verði.
2.450 krónur. Frábær kaup. Með grilluðu lambi með fullt af rósmarín, timjan eða öðrum kryddjurtum.
-
9