Amarone er einstakur vínstíll frá Veneto á Ítalíu þar sem að þrúgurnar eru þurrkaðar áður en þær eru pressaðar fyrir gerjun. Úr verður einstaklega samþjappað og mikið vin. Það eru til mörg afbrigði og afsprengi Amarone-stílsins undir ýmsum heitum. Þau standast hins vegar ekki hinum einu sönnu Amarone Classico-vínum frá topphúsum á borð við Allegrini snúning. Bestu Amarone-vínin eru þurr og mikil eins og þetta og í lagskiptri ilmkörfunni er að finna hverja víddina á fætur annarri, dökkur, þurrkaður ávöxtur, fíkjur og rúsínur, tóbakslauf og framandi krydd, kanilstöng og múskat ásamt kakóbaunum.
100%
7.990 krónur. Magnað, þurrt, kryddað og mikið vín fyrir bestu villibráðina.
-
10