Rioja-vínin hafa sinn karakter sem að mörgu leyti ræðst af þrúgunni Tempranillo og töluverðri eik, oftar en ekki amerískri. Það er því alltaf forvitnilegt að smakka vín frá svæðinu sem brjótast aðeins út úr norminu og setja aðrar þrúgur svæðisins í forgrunn en Tempranillo. Navarrosotillo er með fremstu framleiðendum lífrænt ræktaðra vína í Rioja og það er þrúgan Garnacha (sem sumir þekkja kannski betur undir franska heitinu Garnacha) sem hér er notuð. Rioja-einkennin leyna sér ekki en vínið sker sig þó verulega frá flestum öðrum vínum svæðisins, það er ekki eins þykkt og breitt og þau verða gjarnan, meira straumlínulagað og rennilegt. Ferskur, kryddaður, rauður ávöxtur, þarna má greina tóbakslauf og lakkrís, kröftugt með elegant og fínum tannínum.
2.790 krónur. Frábær kaup.
-
9