Merlot er líklega sú rauða Bordeaux-þrúga sem unir sér hvað best á Nýja-Sjálandi og virðist loftslagið í helstu víngerðarsvæðum þar henta henni afskaplega vel.
Vínið hefur meðaldjúpan rauðan lit og í nefi blandast saman fersk eik, með vanillu og súkkulaði og dökk kirsuber og sultaðar plómur, smá Mon Cheri-súkkulaði fílingur ef einhver man eftir því. Vínið er bjart og áferðin mjúk og og þykk, þægilegur ferskleikur og kraftur í ávextinum.
80%
2.499 kronur. Frábær kaup. Reynið með lambi og austurlenskum kryddum.
-
8