Austurríska vínhúsið Pfaffl hefur átt ótrúlega góðu gengi að fagna á undanförnum árum og hlotið viðurkenningar sem eitt athyglisverðasta og besta vínhús Evrópu, m.a. frá bandaríska víntímaritinu Wine Enthusiast. Pfaffl-vínin hafa verið fáanleg reglulega hér á landi og hér er komin lína sem er á meira en viðráðanlegu verði. Rétt eins og rauða systurvínið úr þrúgunni Zweigelt er þessi Gruner Veltliner, sem er eins konar þjóðarþrúga Austurríkis, á ótrúlega góðu verði miðað við gæði.
Fölgult á lit, í nefi stikilsber, mildur sítrus, perur og strokleður, þægilega létt og ferskt í munni.
80%
2.299 krónur. Frábær kaup. Fínn fordrykkur.
-
8