Ca’Florian er einnar ekru Amarone, blanda úr þrúgunum Corvina, Rondinella og Corvinone sem ræktaðar eru á Ca’Florian ekrunni í hæðum Valpolicella
. Þetta er frábær Amarone, gífurlega kraftmikill og þykkur án þess að verða yfirþyrmandi, elegant vín, þurrt og þétt. Í nefinu eru þurrkaðir ávextir, smá rúsínur, fíkjur í bland við vanillu og lakkrístóna. Þykk, mjúk og kröftug tannín. Gefið víninu góðan tíma til að opna sig.
100%
8.999 krónur. Frábær kaup. Þetta er stórt og mikið vín. Fínt fyrir rjúpuna.
-
10