Wyndham Bin 555 Shiraz 2019

Vínhúsið George Wyndham er nefnt eftir einum af frumkvöðlum ástralskrar víngerðar sem að gróðursetti fyrstu Shiraz-runnana í Hunter Valley í byrjun nítjándu aldar. Þetta er þykkur og fínn ástralskur Shiraz, sæt bláber, blómangan og vottur af reyk og vanillu. Mjúkt, kryddað og með ágætis fyllingu. Fínasta grillvín.

80%

2.699 krónur. Mjög góð kaup. Vín sem er tilvalið með til dæmis grilluðu lambi.

  • 8
Deila.