
Arthur Metz er eitt stærsta vínhúsið í Alsace í norðurhluta Frakklands og var upphaflega stofnað árið 1904 af Arthur þeim sem það dregur enn nafn sitt af. Fyrirtækið hefur blómstrað í gegnum árin og er nú hluti af einu stærsta vínfyritæki Frakklands, Le Grand Chais de France.
Ljósgult með smá bleikum tónum, þroskuð gul og rauð epli, perur og ferskja í nefi, nokkuð sætur ávöxtur, kryddaður, áferðin þykk og mjúk, fersk sýra sem lyftir víninu upp og vegur vel upp á móti mildri sætunni.
80%
2.699 krónur. Mjög góð kaup. Þetta er aðgengilegt og þægilegt hvítvín sem hentar með mörgu, reynið t.d. með sushi eða krydduðum austurlenskum réttum.
-
8