G.D. Vajra Langhe Bianco

Hvítvínið Langhe Bianco frá Vajra í Piedmont á Ítalíu er eitt af þessum vínum sem fellur ekki undir neinar hefðbundnar skilgreiningar. Þetta er Riesling-vín en á samt ekkert sameiginlegt með t.d. Riesling frá Mósel, Rín eða Alsace. Í hreinskilni sagt er Riesling líklega það síðasta sem flestum myndi detta í hug ef þeir smakka þetta vín blint. Það er kannski helst að í stílnum megi finna einhverjar hliðstæður í bestu vínum Austurríkis, frá svæðum á borð við Wachau.

Riesling á samkvæmt hefðinni ekki „heima“ í Piedmont en afi Aldo Vajra heillaðist af þrúgunni í heimsókn í Alsace á síðustu öld og kom með nokkra græðlinga heim er hann fékk á ekrum hins frábæra framleiðanda Marcel Deiss í bænum Bergheim.

Þetta er ekki átta gata amerískt tryllitæki heldur rennilegur ítalskur sportbíll sem rýkur áfram nánast án þess að maður taki eftir því. Ljóst með fölum grænum tónum, skarpir sítrustónar í nefi, hvít blóm, míneralískt, sýrumikið, lágstemmdur kraftur í munni, þetta er vín sem hættir ekki heldur kemur, aftur og aftur. Magnað.

5.150 krónur. Þetta eru sjaldgæfir dropar.

 

Deila.