Montepulciano d’Abruzzo eru yfirleitt fremur létt, þægileg og ódýr vín. Það sem maður kallar alla jafna „góð kaup“. Það er ekki oft sem að maður rekst á risabolta á borð við San Clemente gerða úr Montepulciano, þvílíkt vín.
Strax og nefið er rekið ofan í glasið er ljóst að þarna er eitthvað spennandi á ferð, vínið öflugt og mikið um sig, myrkt og dökkt, skógarber, hreint súkkulaði og sætur viður, þungur áfengishjúpur í kring. Mjög ágengt, tannískt og kröftugt í munni, þar kemur töluverður lakkrís í ljós. lítið vöðvatröll. Fersk og mjög öflug sýra og tannín gera vínið hins vegar engu að síður matvænt.
5.465 krónur.