Þessi flotta Mojiti-útgáfa er frá Valtý Bergmann á Fiskmarkaðnum. Klikkar ekki frekar en annað frá Valtý.
4 msk ferskur mangó
10-15 myntublöð
3-4 limebátar
3 tsk hrásykur
6 cl Havana Club Anejo Blanco
Sódavatn
Merjið saman limesafa, myntulauf, sykur, mangó og skvettu af sódavatni. Bætið rommi við. Fyllið glas af klakamulningi eða klaka og toppið með sódavatni.