Þrúgan Pinot Gris er þekkt undir ýmsum nöfnum og er Pinot Grigio líklega það sem flestir kannast við. Í Evrópu ráða hefðir og tungumál því hvaða nafn er notað. Utan Evrópu er það hvort að menn nota franska, ítalska eða þess vegna þýska nafnið á þrúgunni yfirleitt til marks hvaða stíl víngerðarmaðurinn er að vinna með. Hér er það greinilega hinn norður-franski þótt vínið sé nýsjálenskt.
Saint Clair Vicar’s Choice Pinot Gris 2009 er lítil ávaxta- og blómasprengja. Þroskuð gul epli, perur og melónur í nefi ásamt kryddaðri blómaangan. Í munni nokkuð þykkt en skarpt og titrandi ferskt, ávöxturinn sætur og þægilegur. Virkilega heillandi vín.
2.249 krónur. Mjög góð kaup.