Þrúgan Pinot Noir er duttlungafull og hún dafnar á fáum stöðum utan heimahaga sinna í Búrgund í Frakklandi. Það eru þó einstaka undantekningar á því, ekki síst hefur Nýsjálendingum tekist að ná einstaklega góðum tökum á ræktun Pinot Noir.
Saint Clair Vicar’s Choice Pinot Noir 2008 er ungur og ávaxtaríkur Pinot, ferskur og sætur trönu- og rifsberjasafi einkennir angan vínsins, fer jafnvel út í rifsberjahlaup. Mild kryddangan. Létt, mjúkt og þægilegt í munni, mild tannín og sýra. Minnir ef eitthvað er frekar á Alsace en Búrgundar-Pinot.
2.449 krónur.