Whiskey Sour

Whiskey Sour er sígíldur drykkur sem líklega var fyrst settur saman í Bandaríkjunum á síðari hluta nítjándu aldar. Hér er hann í nútímalegri útgáfu Ása á Slippbarnum.

  • 1 eggjahvíta
  • 6 cl Bourbon
  • 3 cl sítrónusafi
  • 1,5 cl sykursíróp
  • 2 döss af fersku appelsínusafa (kreystið einn bát)

Þeytið vel saman með töfrasprota.

Næst er bætt saman við 1 msk heimalöguð kirsuberjasulta

Setjið í hristara ásamt klaka og hristið vel.

Glasið er spreyjað með absinthe-úða. (Absinthe í litlum úðabrúsa). Fyllið viský-glas með klaka og síið í glasið. Skreytið með appelsínuberki og kirsuberi.

Deila.