Þessa rauðvíns- og teriyakiblöndu má nota jafnt sem marineringu eða sem gljá sem penslaður er á kjúklinginn á meðan hann er grillaður á teini eða butterfly.
- 2,5 dl rauðvín
- 1 dl Teriyaki
- 1 dl ólífuolía
- 3 pressaðir hvítlauksgeirar
Setjið í pott og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið þá hitann og látið malla á vægum hita í um 15 mínútur eða þar til að lögurinn fer að þykkna.
Sem marinering
Látið úrbeinaðar kjúklngabringur eða læri liggja í leginum í um klukkustund í ísskáp áður en kjúklingurinn er grillaður.
Sem gljái
Saltið kjúklinginn vel og piprið. Setjið á tein eða skerið í butterfly. Smyrjið leginum á kjúklinginn reglulega á meðan hann er grillaður.
Það er líka