Þetta er snilldardrykkur hjá Christian Hägg á bar Kolabrautarinnar í Hörpunni en hindberjafroðan gefur honum óvenjulegt yfirbragð sem lætur hann standa undir nafni.
3,5 cl Absolut Vodka
1,5 cl De Kuyper Raspberry
1,5 cl ferskur sítrónusafi
2 dass sykursíróp
Setjið í hristara ásamt klaka. Hristið vel og síið í Martini-glas. Á Kolabrautinni er síðan í lokin sett yfir hindberjafroða og drykkurinn skreyttur með þurrkuðum hindberjum.