Hugmyndin að þessari uppskrift, sem fyrst náði vinsældum hjá grillurum í Bandaríkjunum, er jafn snilldarleg og hún er einföld. Í raun þarf ekkert annað en kjúkling og bjórdós. Þetta er mjög sniðug leið til að koma gestum á óvart í grillveislu.
Til að kjúklingurinn, sem á ensku er ýmist nefndur Beer Can Chicken eða Beer Butt Chicken, njóti sín sem best er nauðsynlegt að láta ekki bjórinn einan duga heldur krydda fuglinn vel. Góð kryddblanda fyrir kjúkling fæst til dæmis með því að blanda saman:
- 2-3 msk olíu
- 2 tsk paprikukrydd
- 2 tsk óreganó
- 1/2 tsk Cayennepipar
- Maldonsalt
Einnig er hægt að gott að bæta smá pressuðum sítrónusafa saman við. Blandið saman í skál og veltið síðan kjúklingnum upp úr. Nuddið kryddblöndunni inn undir húðina. Best er að geyma kjúklinginn í ísskáp í 1-3 klukkutíma til að leyfa kryddunum að komast inn í kjötið.
Þá er komið að því mikilvægasta. Að undirbúa bjórdósina. Best er að nota 33 cl dós en 50 cl er líka hægt að nota ef hæð grillsins leyfir. Það verður að vera hægt að loka grillinu þegar kjúklingurinn er kominn á.
Tæmið dósina að hálfu leyti með eigin aðferð. Skerið ofan af dósinni með dósaopnara líkt og um niðursuðudós væri að ræða. Glennið kjúklinginn og smeygið honum varlega ofan á dósina.
Kjúklinginn þarf að grilla á óbeinum hita. Ef hægt er að slökkva á miðjubrennaranum á gasgrillinu er best að koma honum fyrir þar. Á kolagrilli er kolunum dreift þannig að eyða sé undir staðnum þar sem kjúklingurinn verður grillaður. Setjið lítinn álbakka með smá vatni í beint undir fuglinn.
Setjið kjúklinginn á grillið, varlega þangað til að hann er kominn í góða og örugga stöðu. Lokið og grillið í 50-60 mínútur, allt eftir stærð fuglsins og hitanum á grillinu. Ef hitinn er jafn ætti ekkert að þurfa að eiga við fuglinn fyrr en hann er tilbúinn. Ef hitinn er ójafn gæti þurft að snúa honum einu sinni.
Með þessu er hægt að hafa margvíslegt meðlæti. Til dæmis grillaðan maís, kartöflusalat með stökku beikoni, maíssalat eða ekta amerískt Cole Slaw.