Tiramisu er einn af þessum frábæru eftirréttum sem alltaf vekja lukku. Hér er skemmtilegt tilbrigði þar sem rétturinn er borinn fram í glasi.
- 1,5 dl espressokaffi
- 2/3 dl Kahlúa
- 1/3 dl Amaretto
- 3 egg
- 2 msk sykur
- 450 g Mascarpone
- 1 pakkning Ladyfingers
- Dökkt súkkulaði
Aðferð:
Blandið saman kaffinu og líkjörunum. Ef þið eigið ekki bæði Kahlúa og Amaretto er hægt að nota 1 dl af öðrum hvorum líkjörnum.
Setjið eggjagulurnar í skál ásamt sykrinum. Setjið skálina yfir pott með sjóðandi vatni og þeytið í vatnsbaðinu með handþeytara í 1-2 mínútur. Takið skálina af vatnsbaðinu. Geymið og leyfið að kólna.
Stífþeytið eggjahvíturnar.
Blandið Mascarpone-ostinum varlega saman við eggjagulurnar.
Blandið síðan varlega saman við eggjahvíturnar.
Þá er komið að því að byrja að að byggja upp réttinn í glösunum. Best er að nota belgmikil glös, þau mega gjarnan vera á fæti.
Í botninn á hverju glasi fara 3-4 stk ladyfingers sem búið er að dýfa upp úr kaffi- og líkjörsblöndunni. Þið gætuð þurft að brjóta kexin í tvennt til að koma þeim fyrir. Nóg er að dýfa þeim ofan í blönduna í 3-4 sekúndur.
Skiptið nú eggja- og mascarponeblöndunni í glösin þannig að hún þekji kexin.
Rífið súkkulaðið og sáldrið yfir eggjablönuna.
Dýfið 1-2 ladyfingers fyrir hvert glas ofan í kaffiblönduna og stingið ofan í glösin.
Berið fram strax eða geymið í ísskáp þar til rétturinn er borinn fram.