Linsubauna-samósur með kirsuberjasósu og Shiraz

Þessi uppskrift er undir indverskum áhrifum en þau eru áberandi ekki síst í austurhluta Suður-Afríku þar sem er mikið um innflytjendur af indverskum uppruna. Þessar samósur eru tilvaldar með Drostdy-Hof Shiraz.

Samósur

  • ½ dl ólífuolía
  • 1 saxaður laukur
  • 1 msk pressaður hvítlaukur
  • 2 msk rifinn engifer
  • 1 msk saxaður rauður chili-belgur
  • 1 dós linsubaunir (eða um 2 dl af soðnum linsubaunum)
  • salt og pipar
  • 250 g filo-deig
  • 5 dl Canola-olía til steikingar

Kirsuberjasósa

  • 1,5 dl ólífuolía
  • 2 saxaðir hvítlauksgeirar
  • ½ laukur, fínsaxaður
  • 1 dós kirsuber

Hitið um 0,3 dl af ólífuolíunni í pönnu og mýkið laukinn. Bætið við hvítlauk, engifer og chili og mýkið áfram á miðlungshita. Bætið við grænmeti og linsubaunum og steikið þar til að grænmetið er orðið mjúkt. Saltið og piprið. Leyfið að kólna aðeins.

Þá er komið að kirsuberjasósunni. Hitið afganginn af ólífuolíunni og steikið lauk og hvítlauk á miðlungshita. Bætið við kirsuberjum og um 0,8 dl af vökvanum úr dósinni. Eldið þar til að sósan byrjar að þykkna.

Skerið filo-deigið í um 7 sm breiðar ræmur. Setjið 2-3 msk af linsubaunablöndunni neðst á hvern bita og lokið varlega þannig að úr verði þríhyrningur.

Hitið Canola-olíuna á lítilli pönnu. Hún á að vera mjög heit. Prufið að setja lítinn bita af deiginu í olíuna. Hann á að brúnas á um 15 sekúdnum.

Steikið samósurnar þar til þær verða gylltar á lit.

Á meðan er sósan hituð og látin málla í um tíu mínútur.

Berið samósurnar fram með sósunni.

Deila.