Bollinger Brut Rosé

Rósavín þykja oft einföld. Rósakampavín eru hins vegar allt annar handleggur. Þetta eru ekki rauðvín framleidd eins og hvítvín líkt og rósavín heldur hágæðakampavín þar sem að rauðvíni, Pinot Noir-víni frá Champagne, er bætt saman við. Hjá bestu kampavínshúsunum eru rósakampavínin með bestu kampavínunum – tignarleg, fögur og seyðandi.

Bollinger Brut Rosé er magnað kampavín, þétt og ágengt, þroskaður rauður skógarberjaávöxtur í nefi, þrátt fyrir þroska ávaxtarins hefur vínið mikinn ferskleika. Mjög langt og kröftugt uppistaðan Pinot Noir, vín sem hefur gífurlega breidd, getur verið allt frá fordrykk yfir í matarvín með t.d. laxi eða jafnvel önd í berjasósu.  Reynið með humar eða risarækjum. Bæði hrikalega „auðvelt“ og aðgengilegt  fyrir hvern sem er sem flókið og margslungið fyrir kampavínsfrík.

10.190 krónur

 

Deila.