Chateau Pibran 2008

Pibran er vínhús í Pauillac í Bordeaux næsti nágranni risa á borð við Pichon, Lynch-Bages og Latour. Það hefur undanfarið verið rekið í náinni samvinnu við Pichon-Barone og það er sama víngerðarteymið sem býr til vínið. Pibran var hins vegar ekki flokkað sem Grand Cru Classé árið 1855 líkt og nágrannarnir heldur er þetta Cru Bourgeois sem skilar sé í mun “neytendavænna” verði heldur en stóru nöfnin.

Pibran 2008 er klassískt Pauillac, tignarlegt, rismikið og mineralískt með dimmum sólberjaávexti, tóbakslaufum og reyk í nefi. Vel uppbyggt, tannískt en þó nú þegar aðgengilegt og fínt. Þetta er vín fyrir hreindýrið eða nautalundina.

6.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.