Perrin Cotes-du-Rhone Villages 2009

Perrin-fjölskyldan rekur rótgróið víngerðarhús í Rhone í Suður-Frakklandi, sem þekktast er fyrir Chateauneuf-vínið Beaucastel. Ódýrari vín þeirra Perrin-bræðra standa hins vegar einnig fyrir sínu.

Einungis brot þeirra vín, sem eru framleidd í Cotes-du-Rhone fá að nota skilgreininguna Villages, en til þeirra eru gerðar strangar kröfur.  Ekki spillir heldur fyrir að 2009 var magnaður árgangur í Rhone. Þetta vín frá Perrin er klassískt Rhone-vín, dökkt og kryddað, með þroskuðum sólberjum, lakkrís og suður-frönskum blómum og kryddjurtum í nefi. Það er all nokkuð mikið um sig, þétt og langt. Silkimjúk tannín, yndislega þægilegt. Gefið því smá tíma til að opna sig og njótið t.d. með íslensku haustlambi.

2.450 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.