Fuzion-vínin frá Argentínu hafa víða vakið mikla athygli fyrir ágætis vín á mjög góðu verði. Í Kanada urðu þessi vín til dæmis metsöluvín á ótrúlega skömmum tíma.
Þetta hvítvín frá Fuzion er hreint Chardonnay-vín. Fersk, sæt angan af hitabeltisávöxtum, ananas, bananar og appelsínubörkur. Létt og þægilegt. Þetta er ekki flókið vín en það gefur afskaplega mikið fyrir peninginn. Virkilega góð kaup, sem tryggir víninu fjórðu stjörnuna.
1.638 krónur.