Haukur Heiðar: Páskabjórarnir 2014

Páskabjórarnir eru komnir í Vínbúðirnar. Það er  því skammt stórra högga á milli í bjórbransanum. Frá því í nóvember hafa árstíðabundnir bjórar ráðið lögum og lofum. Núna er þessari röð hátíðabjóra að ljúka með páskabjórunum. Páskabjórarnir í ár eru ólíkir jóla- og þorrabjórum á þann hátt að hér er enginn framleiðandi að reyna að para markvisst með mat.

Það verður að segjast strax að páskabjórarnir í ár eru ákveðin vonbrigði. Hér er lítið farið út fyrir rammann. Samt tel ég að Íslendingar myndu almennt taka nýjungum vel þegar kemur að árstíðabundnum bjórum. Áhuginn á bjórum eins og Surt, Skaða og Giljagaur hefur sannað það. Ekki það að páskar kalli á stóra bjóra en ég myndi vilja sjá fleiri brugghús hér á landi brugga mismunandi bjórstíla. Í ár má segja að það séu tveir bjórar sem skara fram úr. Þeir eru afar ólíkir en báðir ákaflega vel gerðir.

Enn eitt árið sannar Baldur Kárason að hann kann að brugga bock. Víking Páskabock er ef til vill einn besti bock sem Víking hefur gert, og líkt og áður myndi bjórinn klárlega standast snúning við þýska frændur sína. Það er við hæfi að páskabjór sé bock þar sem Þjóðverjar hafa áratugum saman tengt bock við vorið og föstuna. Bock er undirgerjaður bjór og tilheyrir því lagerfjölskyldunni. Hins vegar er bock bragðmeiri bjór en hinn hefðbundni lager, hér er meira malt og áfengisprósentan fær að rísa upp fyrir það sem þekkist í hinum venjulega lagerbjór. Bock er því ætlaður fyrir hægari drykkju en hinn venjulegi lager. Víking Páskabock lætur talsvert fara fyrir sér á tungu, hann er bragðmikill með grösuga beiskju, talsverð mikla rist og örlítinn hita. Í nefi má finna keim af rist og grösugum humlum.

Frá Borg kemur áhugavert öl sem þeir nefna Jesús. Það er afar viðeigandi þar sem sagan segir að Jesús reis upp frá dauðum á Páskadag. Ölið á líklegast mest skylt við ljóst öl frá Belgíu en hér er ekki beint verið að miðast við að þröngva ölinu niður á einhvern ákveðin bjórstíl. Jesús fékk að liggja með eikarteningum fyrir upprisu og má finna talvert fyrir því í bjórnum. Í Jesús eru einnig kakónibbur frá Omnom súkkulaðigerð. Kókoskeimurinn frá eikinni slæst því í för með kakó til að gera ölið virkilega sætt og færa því sælgætislegt yfirbragð. Í nefi má finna fyrir örlítilli eik með vanillu og kókostónum, einnig virðist sælgætið láta fara fyrir sér því í nefinu má einnig finna fyrir mikla sætu tóna sem og örlítið korn. Í munni er hann afar sætur og því á hann talsvert skylt við páskaeggjaát íslendinga, væntanlega myndi hann því sóma sér ágætlega með einu páskaeggi.

Aðrir páskabjórar voru Steðji Þari, Kaldi Páskabjór og Egils Páskagull. Steðji hefur oft komið með áhugaverða lagerbjóra um hátíðar og ætlunin hefur greinilega verið sú sama í ár. Steðji Þari er með þara og kakói sem gerir hann sérstakan. Áhugaverður lagerbjór úr Borgarfirðinum. Að norðan kemur svo Þorrabjór Kalda en hann er í tékkneskum stíl eins og aðrir bjórar Kalda. Ágætis bjór hér á ferð og klárt mál að hinn stóri aðdáendahópur sem Kaldi á verður ekki fyrir vonbrigðum. Lestina rekur síðan Páskagull sem er samur við sig. Auðdrekkanlegur bjór sem er meira fyrir partíið en sjálfa hátíðina.

Þess má geta að á Microbar er einnig fáanlegur páskabjór Gæðings og páskabjór frá  danska brugghúsinu Mikkeller sem nefnist Funky (e).

Deila.