Vini Manduria Salice Salentino Riserva 2009

Salice Salentino er svæðið syðst á Púglía-skaganum einu elsta vínræktarsvæði Ítalíu. Primitivo er líklega sú þrúga sem flestir tengja við Púglía í dag – hér er það hins vegar önnur þrúga að nafni Negroamaro sem ræður ríkjum en nafnið mætti þýða sem sú dökka, beiska.

Vínið er farið að sýna þroska í lit, þarna er reykur, jörð, dökkur þurrkaður ávöxtur, rúsínur og reykelsi. Svolítið exótískt. Mjúkt, byrjandi þroski, þægileg tannín. Vín sem smellur með grilluðum lamabkótilettum með fullt af kryddjurtum eða þess vegna grilluðum ítölskum kryddpylsum.
2.498 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.