Kalkúnabringa fyllt með mozzarella og salvíu er skemmtilegt tilbrigði við hinar hefðbundnu kalkúnamáltíðir.
Kalkúnabringan
- 1 kalkúnabringa
- 50 g rifinn parmesanostur
- 1 lúka fínt söxuð salvía
- 1 msk volgt smjör
- salt og pipar
Blandið öllu vel saman. Leysið skinnið frá bringunni með því að smeygja fingrum undir það og troðið blöndunni undir.
Soðið
- 3 dl vatn
- 2 sellerístönglar, grófsaxaðir
- 2 gulrætur, gróft saxaðar
- 1 laukur, grófsaxaður
- 4 hvítlauksgeirar, saxaðir
Setjið í eldfast mót eða steikarfat. Setjið kalkúnabringuna sem búið er að troða með parmesanblöndunni ofan á og eldið í ofni við 200 gráður í 40-45 mínútur eða þar til að bringan er fullelduð. Hellið soðinu úr pönnunni/fatinu frá og notið í sósuna.
Salvíu- og sérrísósa
- Kalkúnasoð
- 1 skalottulaukur, mjög fínt saxaður
- 1 msk smjör
- 1 dl sérrí (helst þurrt á borð við Tio Pepe)
- 2 msk fínt söxuð salvía
- 2 msk sýrður rjómi 18% eða 1 dl rjómi
Hitið smjörið í potti og mýkið skalottulaukinn í nokkrar mínútur. Bætið sérrí og salvíu út í og sjóðið niður um helming. Bætið soðinu út í og látið malla þar til að sósan fer að þykkjast. Setjið sýrða rjóman út í og sjóðið aðeins áfram. Bragðið á sósunni og saltið og piprið ef þarf.
Berið fram með t.d. fetamús og kastarólu með sætum kartöflum.
Ferskt og þykkt hvítvín, t.d. hið franska Louis Jadot Bourgogne Blanc.