Stonewell er toppvín framleiðandans Peter Lehmann í Barossa í Ástralíu og er flokkaður sem einhver besti Shiraz sem framleiddur er í Ástralíu. Árgangurinn 2006 er með þeim bestu og þetta er óneitanlega einhver magnaðasti Stonewell sem Lehmann hefur sent frá sér. Gífurleg samþjöppun og kraftur en samt ótrúlega neysluvænt nú þegar.
Þung og mikil angan, dökkt súkkulaði, döðlur, sveskjur og bláberjasulta, töluvert eikað og kryddað, kanill. Massað en mjúkt, mjög mjúk og slétt tannín. Hreindýr, naut og rjúpa.
5.999 krónur. Magnað vín.