Vínsamlagið í Pfaffenheim í Alsace í Frakklandi eða Cave Vinicole de Pfaffenheim et Gueberschwihr er enn eitt dæmið um að vínsamlög bænda geta verið í fremstu röð. Það var sett á laggirnar af hópi bænda árið 1957 sem vildu sameina krafta sína. Þeir telja nú 250 vínbændurnir sem standa að samlaginu.
Ungt og arómatískt í nefi, sæt límóna, jasmín og kamilla. Þykkt og feitt í munni en með góðri sýru sem heldur því fersku og skarpt kryddbit undir blálokin. Reynið með foie gras eða jafnvel hangikjöti.
2.395 krónur. Mjög góð kaup.