Ég „veðrast“ öll upp á þessum árstíma og elska að skella í eitthvað sem hressir og gleður kroppinn!! Þessar dásamlegu kökur gleðja kroppinn.
• 125 ml. bráðið smjör
• 125 ml kókosolía
• 125 ml hunang (ég notaði akasíuhunang)
• 2 egg
• 1 tsk salt
• 1tsk vanilla
• 1tsk kanill
• 1 tsk matarsódi
• 125 ml ab-mjólk eða súrmjólk
• 500 ml haframjöl
• 500 ml spelt, grófmalað
• 80-100 gr súkkulaði eða rúsínur
Aðferð
1. Hitið ofninn í 180°C
2. Hrærið saman smjör, olíu, hunang, egg, salt, vanillu, kanil, matarsóda og ab-mjólk/súrmjólk
3. Bætið saman við haframjöl, spelt og súkkulaði/rúsínur
4. Setjið með skeið á bökunarplötu
5. Bakið í 10-15 mín
Njótið í botn