Altano Quinta do Ataide Reserva 2009

Douro-dalurinn í norðurhluta Portúgal er með fegurstu víngerðarhéruðum heims. Fljótið Douro hlykkjast um dalinn á lokasprett sínum að Atlantshafiog í bröttum hlíðunum berst vínviðurinn í grýttum jarðveginum á manngerðum syllum. Douro er auðvitað þekktast fyrir að vera hérað portvínanna, frægustu vína Portúgal. Smám saman eru rauðvínin þaðan hins vegar að skapa sér sess utan Portúgal og fleiri og fleiri uppgötva hvað þau eru mögnuð.

Symington-fjölskyldan hefur lengi verið með stærstu nöfnunum í portvínum – fjölskyldan á bak við portvínshúsin Graham’s, Warre’s, Cockburn’s og Dow’s. Líkt og mörg portvínshús er Symington-fjölskyldan að leggja aukna áherslu á „léttvín“ en ekki bara styrkt vín í takt við kröfur og þróun markaðarins og gerir það undir nafni vínhússins Altano.

Quinta de Ataide er ein stærsta ekra fjölskyldunnar og auðvitað er þetta hreint Touriga Nacional. Það er mikil eik í nefinu. Kaffi, súkkulaði og út í blóm. Ávöxturinn mildur, mjúkt, fersk sýra, vínið töluvert kryddað. Virkilega flott vín, farið að sýna nokkurn þroska.

3.496 krónur.

Deila.