Einn virtasti sérfræðingur heims þegar kemur að kampavínum, Bretinn Tom Stevenson, skipulagði keppni sem nefnist Champagne and Sparkling Wine World Championship. Hún var haldin í fyrsta skipti á dögunum en um er að ræða eins og nafnið gefur til kynna eins konar „heimsmeistarakeppni“ fyrir freyðandi vín. Freyðivínið Ferrari frá Trentino á Ítalíu hefur löngum verið í miklu uppáhaldi hjá okkur og var m.a. Ferrari Maximum Brut fyrsta vínið sem hlaut titilinn „vín ársins“ hér á Vínótekinu. Það var því ánægjulegt að sjá að það freyðivín sem valið var besta freyðivín heims utan Champagne-héraðsins var toppvínið frá Ferrari sem heitir Ferrari Pérle.
Ferrari besta freyðivínið
Deila.