Þessa fögru toppa er mjög einfalt að gera. Bragðlaukarnir taka kipp og tjútta af gleði…
Ef kókos er í uppáhaldi, eru þessir klárlega málið!
HRÁEFNI:
- 750 gr. kókos
- 4 eggjahvítur, stórar
- 100 gr. hrásykur
- 1 tsk. vanilla (ég nota vanilluduftið frá Rapunzel)
- 1/4 tsk. salt
- 100 gr. 70% súkkulaði (brætt)
AÐFERÐ:
- Hitð ofninn í 180°C
- Blandið öllu nema súkkulaðinu vel saman
- Mótið í kúlu og setjið á pappírklædda bökunarplötu
- Bakið í 10-15 mín
Kælið vel áður en tekið er af plötunni. Mér finnst algjör bónus að dýfa þeim í súkkulaði eða bæta því niðurskornu út í deigið.
Þessar fögru elskur hafa svo góða nærveru að manni hlýnar að hjartarótum.
Njótið vel !!