Honoro Vera rauðvín frá Bodegas Juan Gil, gert úr lífrænt ræktuðum Monastrell-þrúgum frá héraðinu Jumilla.
Vínið er dökkt, ungt og kraftmikið. Gefið víninu góðan tíma, það þarf á því að halda, er of ungt og hart í byrjun fyrst eftir að flaskan er opnuð til að njóta sín til fulls. En það mýkist síðan og breiðir vel úr sér. Mjög kryddað í nefi, múrsteinn, blóm, berjabak. Í munni þurrt, tannískt, lifandi og ferskt, nokkuð áfengt með krydduðum löngum endi.Ansi hreint flott vín.
2.695 krónur. Mjög góð kaup.