Sauvignon Blanc kann að vera orðin „alþjóðleg þrúga“ en það er á svæðum eins og Sancerre í austurhluta Loire-dalsins sem að hún á raunverulega heima. Bourgeois-fjölskyldan hefur framleitt vín á þessum slóðum um tíu kynslóða skeið í þorpinu, nánar tiltekið í smáþorpinu Chavignol sem er ekki síður þekkt fyrir einhverja bestu geitaosta Frakklands.
Skarpt og flott í nefi, grösugt og mikill, suðrænn ávöxtur, ferskjur, lime, nokkuð míneralískt, kalk. Ferskt, skarpt og lifandi í munni, hreinn og tær nútímalegur Sauvignon
3.890 krónur. Sérpöntun.